Komið er að lokaspretti heimsmeistaramótsins í League of Legends en úrslitin verða spiluð á miðnætti annað kvöld, aðfaranótt sunnudags. Í Arena í Kópavogi verður haldin áhorfsveisla fyrir úrslitin ásamt ARAM-móti í leiknum.
Mótið fer fram í San Fransiskó í Bandaríkjunum að þessu sinni og eru það liðin DRX og T1 sem mætast í úrslitaviðureigninni annað kvöld.
Á síðasta ári fór mótið fram í Laugardalshöllinni hér á Íslandi og fylgdust um 74 milljónir einstaklinga með úrslitaviðureigninni þegar mest lét.
Þrátt fyrir að mótið fari ekki fram á Íslandi í ár fékkst ágætis landkynning í aðdraganda mótsins.
Þá tók Riot Games, framleiðandi League of Legends, upp hvatningarmyndband við Almannagjá á Þingvöllum til fögnuðar um norræna leikmenn sem keppa um heimsmeistaratitilinn ár.
Riot Games hefur háar væntingar fyrir úrslitin og mun t.d. rapparinn Lil Nas flytja lofsöng heimsmeistaramótsins í ár.
Þá flytur hann lagið Star Walkin í beinni útsendingu, sem var samið sérstaklega fyrir mótið í ár.
Sem fyrr segir hefjast úrslitin á miðnætti og verða sýnd í rafíþróttahöllinni Arena í Kópavogi, en úrslitin gætu staðið yfir fram að sunnudagsmorgni klukkan 05:00.
Um kvöldið verður dregið úr happdrætti þar sem hægt verður að vinna sér inn heimsmeistaramóts-varning frá Riot Games. Auk happdrættisins verður haldið ARAM-mót áður en úrslitin hefjast. Á hugasamir skráð sig til leiks bæði sem einstaklingar eða sem fullskipað lið.
Í tilkynningu sem var birt á Facebook-hóp íslenska League of Legends-samfélagsins segir að mæting sé hvenær sem er yfir kvöldið og eru allir hvattir til þess að mæta.
Skráningin í ARAM-mótið fer fram í gegnum þennan hlekk en allir eru velkomnir í áhorfsveisluna.