Leikmenn í tölvuleiknum Call of Duty: Modern Warfare II þekkja það vel að lifna við óheppilegum stöðum innanleikjar og eru orðnir býsna þreyttir á því. Að sjá leikmann deyja tvisvar í röð er þó eitthvað sem virkilega undirstrikar vandamálið, þó fyndið sé.
Reddit-notandinn ZestyRanch1219 deildi nýlega myndbandi frá sér sem vakti mikla athygli, en þar sést hann deyja tvsivar í röð innanleikjar.
Myndbandinu var deilt í gríni en í umræðunni undir myndbandinu sést þó að leikmenn eru orðnir býsna þreyttir á því hve oft þeir lifni við á óheppilegum staðsetningum sem þessum.
Hér að neðan má sjá myndbandið í heild sinni.