Stelpurnar í streymishópnum Babe Patrol ætla að halda „alvöru bingókvöld“ næstu helgi.
Á föstudaginn verður heldur en ekki fjör í Kópavogi þegar stelpurnar bjóða í bingó í rafíþróttahöllinni Arena. Kvöldið hefst klukkan 20:00 og verða glæsileg verðlaun í boði. Þar að auki verða tilboð á barnum og „bullandi stemning“.
Þetta er þó ekki fyrsti viðburður Babe Patrol í Arena, en í október á síðasta ári héldu þær kvennakvöld sem gekk vonum framar.
Í samtali við mbl.is segir Eva Margrét, í Babe Patrol, að bingókvöldið verði að mörgu leyti líkt kvennakvöldinu.
„Okkur langar að búa til svipaða stemningu og þá. Það var ótrúlega gaman að spjalla við fólkið í salnum og svo fóru allir saman inn í sal að spila,“ segir Eva.
„Eftir stelpukvöldið fengum við þó nokkur skilaboð þar sem strákarnir vildu fá að vera með næst svo nú eru allir velkomnir!“