Bílaleikurinn Forza Horizon 5 verður uppfærður í mars og mun uppfærslan bjóða spilurum fleiri möguleika til breytinga á bílum sínum. Uppfærslan ber heitið „Rally Adventure“ og er önnur stóra uppfærslan fyrir leikinn.
Spilarar velja milli þriggja liða og hvert hefur sitt upp á að bjóða, allt milli utanvegakeppna í götukeppna í rallý keppnum.
Forza Horison leikjaserían er ein sú raunverulegasta og vinsælasta bílaleikjasería heims en leikirnir eru einungis aðgengilegir á Xbox leikjatölvunum og Microsoft-tölvum.
Möguleikinn til breytinga á bílum hefur aukist verulega með þessari uppfærslu og geta spilarar nú valið að breyta sportbílum sínum svo þeir henti betur í mismunandi aðstæðum.
10 nýir bílar verða kynntir til sögunnar ásamt fjölda lagfæringa og betrumbóta á leiknum sjálfum. Uppfærslan kemur út 29. mars.