EVE Online fagnar 20 ára afmæli í dag en á þeim tíma hafa um 50 milljónir spilara tekið þátt í mótun EVE heimsins. Um 1600 manns hafa starfað hjá tölvuleikjaframleiðandanum CCP við gerð Eve Online, en sex ár tók að búa til fyrstu útgáfu af EVE Online sem kom út 6 maí árið 2003.
Af því tilefni var í gær haldin veisla í höfuðstöðvum CCP í Grósku í Vatnsmýri þar sem fyrrverandi og núverandi starfsmenn komu saman til að fagna tímamótunum.
Þá var tilkynnt um stækkun á minnismerkinu Heimur innan heima eftir Sigurð Guðmundsson sem stendur við Reykjavíkurhöfn og var reist árið 2014 í tilefni af tíu ára afmæli EVE Online. Þar eru grafin nöfn allra þeirra sem spilað hafa leikinn og undir því er tímahvelfing sem inniheldur fartölvu með myndbandsskilaboðum, skjölum og myndefni úr leiknum.
Stefnt er að því að opna hvelfinguna hinn 6. maí árið 2039. Með stækkun minnismerkisins munu spilarar leiksins einnig geta látið grafa nafn persónu sinnar í leiknum, að því er segir í tilkynningu.
„EVE heimurinn hefur vaxið í veldisvexti síðastliðin 20 ár sem þakka má staðföstum tryggum þátttakendum í EVE Online, bæði spilurum og þeim sem vinna að þróun leikjarins.
EVE Online er margspilunarleikur sem á sér engan líkan og óhætt er að segja að spilarar taki þar þátt af lífi og sál, eins og bæði heimsmet og samtakamáttur þeirra sýna, þegar spilarar hafa safnað fé til þeirra sem eiga um sárt að binda,“ er haft eftir Hilmari Veigari Péturssyni, forstjóra CCP, í tilkynningunni.