Framleiðsla leiksins Grand Theft Auto VI virðist vera á fullu og sumir hafa gengið svo langt að segja að söguþráður leiksins sé tilbúinn. Rockstar Games, framleiðandi leiksins, auglýsti starf á heimasíðu sinni sem kveikti á umræðunni um mögulegan útgáfudag leiksins og hvenær má búast við honum.
Þegar Rockstar Games gaf út leikinn Red Dead Redemption 2 fór athyglin yfir á leikina Grand Theft Auto V og VI. Fljótt kom í ljós að líklegast myndi Grand Theft Auto VI eiga sér stað í borginni Vice City, en það er ekki í fyrsta sinn sem borgin tekur á móti spilurum Grand Theft Auto.
Nokkru eftir það komst óprúttinn aðili yfir gögn Rockstar og birti myndir og myndskeið úr leiknum og urðu margir virkilega spenntir að spila leikinn eftir að hafa séð gögnin.
Eftir að gagnaleikinn átti sér stað hafa fáar fréttir birst um framvindu leiksins og því margir sem tóku gleði sína eftir að nýja starfið var auglýst. Rockstar Games leitar nú að starfsmanni sem getur stjórnað upptöku á talsetningu, sem gefur til kynna að söguþráðurinn sé tilbúinn eða að sjái fyrir endann á því.
Þessi starfsmaður mun finna einstaklinga til þess að talsetja og leikstýra talsetningunni.
Þessar fréttir gefa til kynna að ekki sé allt of langt í útgáfu leiksins en þó er ekki víst að leikurinn líti dagsins ljós á þessu ári.