Keppa í Fortnite á Ólympíuleikunum

Keppt verður í hittni í leiknum Fortnite.
Keppt verður í hittni í leiknum Fortnite. Skjáskot/Fortnite

Í mars ákvað Alþjóða ólympíunefndin að hanna rafíþróttakeppni svo rafíþróttamenn fái stærra svið til þess að spreyta sig á. Það kom þó mörgum á óvart þegar listi yfir leikina sem keppt verður í var birtur, en í stað þess að keppa í hefðbundnum rafíþróttaleikjum á borð við Counter-Strike, League of Legends eða Rocket League urðu leikir eins og bílaleikurinn Gran Turismo, hafnaboltaleikurinn WBSC eBaseball og fleiri íþróttaleikir fyrir valinu.

Líkjast öðrum íþróttum

Allir þessir leikir spila inn á að herma eftir öðrum íþróttum, frekar en að reyna að fanga rafíþróttasenuna eins og hún er nú. 

Núna hefur verið ákveðið að skotleikurinn Fortnite fái að vera með og voru margir sem fögnuðu því að loks væri kominn leikur sem fólk elskar að spila og horfa á. Það er þó ekki eins klippt og skorið og fólk grunar en í stað þess að keppt verður í hefðbundnum Fortnite-leik mun ólympíunefndin sérhanna þrautabraut sem spilarar keppa í og keppt verður í hittni, alveg eins og í sambærilegri skotþraut Ólympíuleikanna. 

Skjáskot/Olympics

Það kemur þó ekki á óvart að Ólympíuleikarnir vilji ekki bjóða upp á leiki eins og Counter-Strike þar sem aðalmarkmiðið er að stöðva hryðjuverkamenn frá því að ná markmiði sínu. Ólympíuleikar rafíþrótta fara fram 22. til 25. júní næstkomandi í Singapúr. 

Skjáskot/Olympics
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert