Síðasta stórmótið sem haldið verður í leiknum Counter-Strike:Global Offensive hófst í dag með umspilskeppni. Alls 24 lið hefja leik en fljótt mun sá fjöldi minnka og keppt verður til úrslita þar sem sigurvegarinn fer með sérkennilega útlítandi verðlaunagrip heim með sér, verðlaunafé og titillinn að hafa unnið síðasta stórmót leiksins.
Mikil spenna var fyrir mótið og gátu leikmenn og aðdáendur ekki beðið eftir fyrstu viðureigninni sem fór af stað í gærmorgun. Eftir svolitla bið vegna tæknilegra örðugleika fór mótið af stað klukkan 09.45 að íslenskum tíma. Alls 16 leikir voru á dagskrá og því var nóg að gera fyrir aðdáendur Counter-Strike sem vildu fylgjast með leikjunum.
G2 hófu leið sína að verðlaunagripnum með tveimur endurkomuleikjum, fyrri leikinn unnu þeir 16-11 og seinni 16-9, sem er sterk byrjun en viðvörunarbjöllurnar hringja.
Umspilið klárast á fimmtudaginn og svo á laugardaginn hefst úrslitakeppnin þar sem 16 sterkustu liðin takast á.