Vilja lyfjaeftirlit í íslenskum rafíþróttum

Rafíþróttir, eins og aðrar íþróttir, þurfa að taka á lyfjamisnotkun.
Rafíþróttir, eins og aðrar íþróttir, þurfa að taka á lyfjamisnotkun. Ljósmynd/Ahmed Atef

Rafíþróttasamtök Íslands birtu í gær yfirlýsingu þar sem vilji er fyrir því að innleiða lyfjaeftirlit í rafíþróttaumhverfinu. Þetta kemur í ljósi umræðu um að einstaka keppendur í rafíþróttum hafi misnotað lyf og mun stjórn RÍSI leita leiða til þess að vinna gegn misnotkuninni.

Senda skýr skilaboð

Stjórn RÍSÍ vill með yfirlýsingunni senda skýr skilaboð út í umhverfið og segja þeim keppendum sem ekki treysta sér að setja íþróttina í fyrsta sæti að sleppa því að taka þátt.

Stjórnin muni ávallt setja íþróttina og starfið sem er í uppbyggingu hér innanlands í fyrsta sæti og er liður í því að fá að taka þátt í íþróttastarfi Íslands að stuðla að heilbrigðri keppni þar sem allir fá sín tækifæri. 

Af Facebook-síðu Rafíþróttasamtakanna.
Af Facebook-síðu Rafíþróttasamtakanna. Skjáskot/RÍSÍ

Í lok yfirlýsingarinnar segir stjórnin að „því fylgir ábyrgð að undirbúa jarðveginn fyrir næstu kynslóð og ef svo reynist að það séu einhverjir keppendur að misnota lyf þá er það ekki umhverfið sem stjórn RÍsÍ vill að bíði yngri kynslóðarinnar þegar hún kemst á stóra sviðið“.

Lyfjamisnotkun á sér stað í flestum íþróttum og er illa vegið að þeim keppendum sem setja íþróttina í fyrsta sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert