Framtíð Gamestöðvarinnar óráðin

Hallbjörn Sigurður Guðjónsson - Gamestöðin lokar - Kringlan.
Hallbjörn Sigurður Guðjónsson - Gamestöðin lokar - Kringlan. Eggert Jóhannesson

Gamestöðinni var skellt í lás í síðasta sinn á sunnudaginn eftir fimmtán ára starfsemi. Verslunin hefur þó ekki alveg kvatt sitt síðasta þar sem hún verður áfram starfræk á Internetinu sem vefverslun.

Í samtali við mbl.is segir Hallbjörn Sigurður Guðjónsson, framkvæmdastjóri og eigandi Gamestöðvarinnar að minnkandi sala í versluninni sjálfri hafi orðið til þess að loka þurfti versluninni. 

Sveinn Aðalsteinn Gunnarsson og Hallbjörn Sigurður Guðjónsson.
Sveinn Aðalsteinn Gunnarsson og Hallbjörn Sigurður Guðjónsson. Eggert Jóhannesson

Einstök þjónusta fyrir tölvuleikjaspilara

Verslunin var sett á legg sumarið 2008 í Skeifunni og bauð upp á þjónustu sem margar aðrar verslanir gerðu ekki, en Gamestöðinni mátti líkja við stóran skiptimarkað.

„Hún þýddi auðvitað að þú gast komið leikjum sem þú varst ekki lengur að spila í verð og sett upp í aðra leiki og minnkað kostnaðinn við að kaupa leiki og aukahluti,“ segir Hallbjörn en þetta er einmitt merki um einstaka þjónustu Gamestöðvarinnar.

Drengur skoðar leik í Gamestöðinni á tímum kreppunnar.
Drengur skoðar leik í Gamestöðinni á tímum kreppunnar. Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Samkeppnin mjög hörð

Þar sem samkeppnin í tölvuleikjaheiminum er mikil keppir Gamestöðin við allar verslanir leikjafyrirtækjanna sem geta oft boðið upp á verð sem Gamestöðin á erfitt með að bjóða upp á.

„Við erum að kaupa af heildsölum hér heima og svo einnig að utan og verðin þar eru allt öðruvísi en það sem t.d. Playstation og Xbox-búðirnar eru með,“ segir Hallbjörn.

Vert er að benda á að PlayStation 5 kostar tæplega 70.000 íslenskar krónur, eða 499.99 bandarískadali á opinberu heimasíðu PlayStation en til samanburðar kostar sama tölva tæplega 107.000 íslenskar krónur í Elko.

Tölvuleikjaiðnaðurinn hefur stækkað mjög mikið undanfarin ár og eru fyrirtæki og leikjaveitur að bjóða upp á tölvuleiki í gegnum ský á netinu sem þýðir að sí færri eiga tölvuleiki á geisladisk.

Það kemur vissulega líka niður á sölu Gamestöðvarinnar og bendir Hallbjörn á að þetta bitni einnig á söfnurum.

„Þetta leiðir til þess að leikir sem fara á veiturnar koma oftast ekki út á disk. Fyrir mig sem safnara er það ekki gott.“

Hver veit hvað gerist í framtíðinni

Líkt og kemur fram hér að ofan verður vefverslunin áfram opin og verður reynt að nýta alla þá sendingarmöguleika sem eru í boði fyrir viðskiptavini en framtíð Gamestöðvarinnar er óráðin þrátt fyrir ýmsar hugmyndir.

„Jafnvel að við förum meira út í notaða hluti. Hver veit svo hvað gerist í framtíðinni, hún er óráðin og galopin.“

Sveinn segir hægt að fá nýjustu gerðir Xbox og PlayStation …
Sveinn segir hægt að fá nýjustu gerðir Xbox og PlayStation með eða án diskadrifs. Diskadrifið getur hentað þeim sem eiga safn af gömlum leikjum á diskum. Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert