Nú stendur yfir stórmót í Counter-Strike í höfuðborg Frakklands, París. Liðin G2 og Vitality sem eru ein bestu lið heims mættust á kortinu Nuke og var leikurinn æsispennandi og fór Vitality með sigur af hólmi 16-13.
Í 15. umferð leiksins var leikmaður Vitality einn gegn fjórum og ákvað hann að reyna taka út alla andstæðingana í stað þess að spara vopnið. Hann tók út einn leikmann í einu og bar svo sigur úr býtum og vann umferðina fyrir lið sitt. Að takast þetta er sjaldgæft enda miklar líkur á að leikmaður geri örlítil mistök þegar hann er eins síns liðs.
Framleiðandi leiksins setti myndskeið af þessu afreki á Twitter-síðu leiksins og skrifaði „spilið þetta á Louvre-safninu“ í gríni og benti þar á að þetta afrek væri listaverk og ætti heima á þessu virta listasafni.
Rafíþróttamiðillinn Dust2.us gerði sér þó lítið fyrir og sýndi myndskeiðið í Louvre-safninu. Starfsmaður þeirra fór inn á safnið með fartölvu og kveikti á myndskeiðinu fyrir framan fræga listaverkið Mona Lisa fyrir þá sem voru staddir á safninu. Þetta átti þó einkum vel við þar sem Vitality er franskt lið og leikmaðurinn, Zyw0o sem vann umferðina, er franskur.