Rafíþróttaliðið G2, sem er eitt besta rafíþróttalið heims, datt úr leik í umspili fyrir úrslitakeppnina á stórmótinu í París. Áður en mótið hófst var liðið talið eitt það sigurstranglegasta en eftir lélega frammistöðu í umspilinu fara þeir ekki lengra.
Fyrirliði liðsins, Rasmus „HooXi“ Nielsen var fljótur að axla ábyrgð á frammistöðu liðsins og skrifaði á Twitter-síðu sína texta til aðdáenda liðsins. Liðsfélagar hans áttu þó allir erfitt uppdráttar í umspilinu og stjörnurnar „NiKo“ og „m0NESY“, sem fara vanalega á kostum, voru hvergi sjáanlegir gegn Fnatic í bráðabananum um sæti í úrslitum.
Það voru miklar væntingar að liðið myndi ná langt eftir lélegt stórmót í Brasilíu í nóvember 2022 en allt kom fyrir ekki og missti G2 af síðasta tækifærinu að vinna stórmót í leiknum Counter-Strike: Global Offensive en Counter-Strike keppnissenan færir sig yfir í leikinn Counter-Strike 2 innan tíðar.
Umræðan í samfélaginu virðist þó ekki snúast um HooXi þrátt fyrir skilaboð hans heldur um NiKo sem hefur aldrei unnið stórmót þrátt fyrir gæði og hæfileika hans. Eftir frammistöðuna á mótinu gæti verið að G2 fari að skoða liðið og hver veit nema breytingar verði gerðar.