Þórarinn Þórarinsson
Þriðju umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike lauk í gærkvöld með þremur leikjum þar sem Saga sigraði ÍA 0:2, Dusty lagði Kano 2:1 og Venus tapaði fyrir Þór 0:2.
Stigataflan tók nokkrum breytingum eftir leiki gærkvöldsins í 3. umferð Ljósleiðaradeildarinnar en að henni lokinni er Dusty aftur í efsta sætinu, Þór í öðru og Ármann í því þriðja.
Fjórða umferð byrjar þriðjudaginn 24. september þegar Venus og Höttur keppa annars vegar og Ármann og Veca hins vegar. Umferðinni lýkur síðan á fimmtudeginum með leikjum ÍA og Þórs, Dusty og Rafik og Kano og Sögu.