Denas og Kristófer stinga af

Þegar ELKO-Deildin í Fortnite er um það bil hálfnuð er …
Þegar ELKO-Deildin í Fortnite er um það bil hálfnuð er ljóst að Denas og Kristófer ætla að vera frekastir til fjörsins.

Eftir fjórðu um­­­­­ferð ELKO-Deildarinnar í Fortni­te má segja að tveir efstu kepp­endurnir hafi boðið upp á endur­tekið efni úr síðustu um­ferð þegar þeir festu sig enn betur í sessi á toppnum.

Denas Kazulis (denas 13) sigraði fyrri leik umferðarinnar með átta fellum og er kominn með 195 stig sem dugðu honum til að endurheimta 1. sætið af Kristófer Tristan (iKristoo) sem aftur á móti gerði nákvæmlega það sama í seinni leiknum, sigraði með átta fellum og er á hælum Denasar í 2. sæti með 185 stig.

Ólafur Hrafn Steinarsson og Stefán Atli Rúnarsson lýstu umferðinni í beinni útsendingu og bentu á að í raun hefðu þeir Denas og Kristófer endurtekið síðustu umferð en þá sigraði Denas fyrri leikinn og Kristófer þann síðari.

Þeir félagar sammæltust um að þessir tveir spilarar, sem hingað til hafa skipt leikjunum á milli sín og væru enn búnir að auka forskot sitt, væru ásamt Emil Víkingi, sem er í 3. sæti með 112 stig, klárlega þrír bestu leikmenn ELKO-Deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert