Venus skellti Skaga­­mönnum á botninn

ÍA og Venus börðust á botni Ljósleiðaradeildarinnar en eftir ágætis …
ÍA og Venus börðust á botni Ljósleiðaradeildarinnar en eftir ágætis byrjun skellti Venus Skagamönnum harkalega í þriðja leik.

Fimmta um­­­­­­­­­­­ferð Ljós­­­­­­leiðara­­­­­­deildarinnar í Coun­ter Stri­ke hófst í gær­­­­­kvöld með tveimur leikjum þar sem Höttur sigraði Ár­mann 2:0 og ÍA tapaði í botn­bar­áttu­leik fyrir Venus 1:2.

Tómas Jóhannsson og Jón Þór Hermannsson lýstu viðureign ÍA og Venus í beinni útsendingu en áður en leikar hófust hafði hvorugt liðið unnið leik í deildinni. Þeir félagar töluðu því um sannkallaða botnbaráttu og hölluðu sér báðir heldur að ÍA í byrjun.


ÍA fór enda vel af stað og vann fyrsta leikinn en Venus tók hraustlega á móti í öðrum leiknum þannig að staðan var 1:1 fyrir þriðja og síðasta leikinn. Þar reyndust Skagamenn hins vegar ekki eiga tækifæri og Venus valtaði yfir þá 4:13.

Tómas og Jón Þór sögðu ÍA beinlínis niðurlægt og liðið situr nú í neðsta sæti Ljósleiðaradeildarinnar með 0 stig. Dusty, Þór og Ármann eru enn í þremur efstu sætunum en margt getur breyst á toppnum á fimmtudaginn þegar umferðin klárast með leikjum Dusty og Veca, Kano á móti Þór og viðureign Sögu og Rafík sem þeir Tómas og Jón Þór ætla að lýsa í beinni útsendingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert