Þrífram­­lengt í „gjör­­sam­­lega svaka­­legum“ leik

Veca komst alla leið á seiglunni og vann Sögu 2:0 …
Veca komst alla leið á seiglunni og vann Sögu 2:0 í hörkuspennandi viðureign.

„Hvað vorum við að horfa á hérna?“ spurði Einar Ragnars­son, hristur og hrærður, eftir beina lýsingu hans og Tómasar Jóhanns­sonar á æsi­spennandi, þrífram­lengdum leik Sögu og Veca í 6. um­ferð Ljós­leiðra­deildarinnar í Coun­ter Stri­ke í gær.

Sjöttu um­­­­­­­­­ferð Ljós­­­­­leiðara­­­­­deildarinnar í Coun­ter Stri­ke lauk á fimmtudagskvöld með þremur leikjum þar sem allra augu beindust að hörkuspennandi viðureign Sögu og Veca sem lauk með þríframlengdum leik í Inferno þar sem Veca hafði loks sigur 22:19.

Veca hafði áður lagt andstæðingana í Sögu að velli í Nuke í fyrri leiknum sem einnig var æsispennandi. Lokatölur þar voru 13-10 fyrir Veca sem vann umferðina því 2:0.

Úrslit leikja í 6. umferð:

Rafík 0:2 Þór 
Dusty 2:0 Ármann   
ÍA 0:2 Höttur     
Saga 0:2 Veca       
Kano 2:0 Venus     

„Þeir vinna þennan leik ótrúlega. Hvað vorum við að horfa á hérna?“ sagði Einar, um sína menn í Veca, eftir seinni leikinn og bætti við að hann væri í sjokki. Tómas sagði að leikurinn hefði einfaldlega verið „gjörsamlega svakalegur.“

„Ég er í sjokki,“ var meðal þess sem Einar Ragnarsson …
„Ég er í sjokki,“ var meðal þess sem Einar Ragnarsson hafði til málanna að leggja þegar hann og Tómas Jóhannsson fóru yfir leiki Sögu og Veca.

Þá bætti hann við að Veca hafi komist þetta á hreinni og klárri seiglu. „Þessi leikur var tapaður örugglega svona ellefu sinnum hjá Veca en einhvern veginn klóruðu þeir sig til baka.“

Sjöunda umferð Ljósleiðaradeildarinnar hefst á þriðjudaginn 15. október annars vegar með viðureign Dusty og Hattar og Kano og ÍA hins vegar. Umferðin klárast síðan á fimmtudeginum þegar Saga mætir Ármanni, Rafík og Venus eigast við og Þór tekur slaginn við Veca.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert