Finn­land aftur meistari í Coun­ter Stri­ke kvenna

Finnska kvennalandsliðið í Counter Strike var óstöðvandi á Norðurlandamótinu um …
Finnska kvennalandsliðið í Counter Strike var óstöðvandi á Norðurlandamótinu um helgina og varði titilinn með glæsibrag. Ljósmynd/@aatigmedia

Finnska kvennalandsliðið er Norðurlandameistari í Counter Strike annað árið í röð eftir 2:0-sigur á liði Danmerkur í úrslitaleiknum í gær. 

Finnska mulningsvélin var óstöðvandi á Norðurlandamótinu 2024 í Svíþjóð um helgina, sigraði allar viðureignir sínar og varði Norðurlandameistaratitillinn eins sannfærandi og mögulegt er.

Vel fór á með landsliðum Íslands og Svíþjóðar um helgina …
Vel fór á með landsliðum Íslands og Svíþjóðar um helgina en liðin enduðu í þriðju og fjórðu sætum Norðurlandamótsins. Ljósmynd/@aatigmedia

Danska liðið endaði, rétt eins og í fyrra, i 2. sætinu en eftir sigra á liðum Íslands og Svíþjóðar mætti liðið aftur ofjörlum sínum og tapaði tvöfalt, 13:6 í Nuke og 13:6 í Inferno,  í úrslitaleiknum gegn Finnlandi.

Finnland er með níu stig í 1. sæti, Danmörk er í 2. sæti með sex stig, Svíþjóð með þrjú stig í 3. sæti og lið Íslands rekur lestina með núll stig í 4. sæti. Þó má segja að stelpurnar okkar hafi farið upp um sæti milli ára því norska liðið, sem var í því fjórða í fyrra, tók ekki þátt að þessu sinni.

Stelpurnar okkar sýndu tilþrif og börðust vel á Norðurlandamótinu en …
Stelpurnar okkar sýndu tilþrif og börðust vel á Norðurlandamótinu en það dugði ekki til og þær enduðu stiglausar í 4. sæti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert