Denas er sigur­vegari deildarinnar

Einvígi Denasar og Kristófers lauk loksins á mánudagskvöld,
Einvígi Denasar og Kristófers lauk loksins á mánudagskvöld, Skjáskot/Fortnite

Einvígi Den­asar­ Kazu­lis og Kristó­fers Trist­ans um toppsæti ELKO-Deildarinnar lauk í gærkvöld og eftir tíu vikur og tuttugu leiki er ljóst að Denas hampar bikarnum sem sigurvegari deilarinnar með 428 stig á móti 415 stigum Kristófers.

Den­as­ Kazu­lis (den­as 13) og Kristó­fer Trist­an (iKristoo) hafa í raun háð einvígi á toppi ELKO-Deildarinnar í Fortnite meira eða minna allt keppnistímabilið og óvissunni um hvor þeirra myndi standa uppi sem sigurvegari var ekki eytt fyrr en að síðustu umferð  venjulegs leiktímabils lauk á mánudagskvöld.

Ólafur Hrafn og Aron Fannar lýstu lokaumferðinni í beinni útsendingu og voru með fullskipaðan sófann með sér en þar sátu Gunnar Björn, Rósa Björk og Stefán Atli. 

Þau lágu ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn og Rósa Björk notaði meðal annars tækifærið til þess að ítreka herkvöð sína til allra stelpna, sem spila Fortnite heima hjá sér, til þess að skrá sig til leiks á næsta mót: „Verið með, stækkum þetta og gerum þetta fjölbreyttara!“

Þrettán stiga munur

Denas byrjaði lokaumferðina með 28 stiga for­skot á Kristófer en aldrei þessu vant tókst hvorugum þeirra að vinna leik á endasprettinum. Kristófer fékk gullið tækifæri til þess að saxa á Denas þegar sá síðarnefndi datt út í fyrri leiknum en þá skaut hinn Kristóferinn (krizzto) enn og aftur upp kollinum og stal sigrinum. 

Hvorugur þeirra náði síðan að landa sigri í lokaleiknum en þá skráði nýr keppandi, Kbriem, sig á lista sigurvegara. Síðasta umferðin dugði Kristófer ekki til þess að eyða forskoti Denasar sem sigraði deildina með 428 stigum.

Þrettán stig skilja því höfuðandstæðingana að og Kristófer er í öðru sæti með 415 stig. Hinn Kristóferinn, sem byrjaði vel í upphafi, skaut sér síðan nokkuð óvænt í þriðja sætið með 227 stig eftir aðeins sextán leiki af tuttugu.

Lokakvöldið í desember

Peningaverðlaun eru veitt fyrir þessi þrjú efstu sæti og með bikarnum fær Deans 125.000 krónur, Kristófer Tristan fær 50.000 og nafni hans (krizzto) 25.000. Þeir geta hins vegar enn mokað inn meira verðlaunafé á lokakvöldi ELKO-Deildarinnar 7. desember.

Þá koma keppendur saman og takast á í Arena á Smáratorgi en þar verða veitt sérstök verðlaun fyrir þrjú efstu sætin; 60.000, 25.000 og 15.000.

Þótt Denas hafi tryggt sér sigurinn í ELKO-Deildinni má segja …
Þótt Denas hafi tryggt sér sigurinn í ELKO-Deildinni má segja að hápunktur tímabilsins sé enn eftir en stóra stundin rennur upp í byrjun næsta mánaðar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert