Albanía viðurkennir rafíþróttir

Rafíþróttasamband Albaníu er orðið aðili að Olympíunefnd landsins.
Rafíþróttasamband Albaníu er orðið aðili að Olympíunefnd landsins.

Albanía er komin í hóp Evrópuríkja á borð við Danmörku, Þýskaland og Frakkland sem viðurkenna rafíþróttir sem fullgildar íþróttir. Rafíþróttasamband Albaníu (FSHSE) er þar með komið undir regnhlíf ígildis ÍSÍ þar í landi.

Samhliða fullgildingunni hefur Rafíþróttasamband Albaníu verið tekið inn í Ólympíunefnd Albaníu sem getur vegið þungt þegar kemur að fyrstu Olympíuleikunum í rafíþróttum sem haldnir verða í Sádi-Arabíu á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert