Dusty burstaði Kano í Anubis

Ásmundur Viggósson (Pandaz) er kominn frá Þór aftur í Dusty. …
Ásmundur Viggósson (Pandaz) er kominn frá Þór aftur í Dusty. Hann var í banastuði með liðinu gegn Kano og var valinn MVP seríunnar.

Dusty sigraði Kano 2:0 í fyrri um­ferð undanúr­slita RIG í Coun­ter Strike í gær­kvöld og mæt­ir því annaðhvort Veca eða Sögu í úr­slita­leikn­um í Laug­ar­dals­höll­inni á laug­ar­dag­inn.

Kano og Dusty hófu leika í Nuke þar sem fyrr­nefnda liðinu tókst að setja mikla pressu á Dusty sem átti á köfl­um í vök að verj­ast en tókst þó að leggja and­stæðing­ana 13:11.

Allt önn­ur staða var uppi í seinni leikn­um sem fór fram í Anu­bis og lauk 13:4. Sem sagt svo­kallað „burst“ eins og þeir Tóm­as Jó­hanns­son og Ólaf­ur Hrafn Stein­ars­son sam­mælt­ust um en þeir lýstu viður­eign­inni í beinni út­send­ingu Sjón­varps Sím­ans og á streym­is­rás­um Rafíþrótta­sam­bands­ins.

Ásmund­ur Viggós­son (Pandaz), sem keppti með Þór í Ljós­leiðara­deild­inni á síðasta tíma­bili, var fun­heit­ur með Dusty í gær­kvöld og Ólaf­ur Hrafn til­nefndi hann hik­laust MVP í báðum leikj­um og þar með serí­unni. 

Seinni um­ferð undanúr­slita RIG verður spiluð á fimmtu­dag­inn og að henni lok­inni ligg­ur fyr­ir hvort það verði Veca eða Saga sem mæta Dusty í úr­slita­leikn­um sem fer fram í Laug­ar­dals­höll á laug­ar­dag­inn, 25. janú­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert