Refsing á refsingu ofan

Charles Pic hjá Caterham.
Charles Pic hjá Caterham. mbl.is/afp

Franski ökumaðurinn Charles Pic hjá Caterham þarf að taka út tvöfalda refsingu í japanska kappakstrinum í Suzuka á morgun.

Fyrir það fyrsta sætir Pic afturfærslu um 10 sæta eftir tímatökurnar vegna refsingar úr suður-kóreska kappakstrinum um liðna helgi.

Í morgun gerði hann þau mistök að aka út úr bílskúrareininni gegn rauðu ljósi. Geldur hann þess með akstri gegnum bílskúrareinina í kappakstrinum á morgun. Verður hann að taka þá refsingu út áður en fimm hringjum er lokið af keppninni.

Pic mun hafa gert álíka mistök í Suður-Kóreu en þá slapp hann með tiltal. Hann varð í 20. sæti í tímatökunni í morgun og mun vegna afturfærslunnar hefja keppni í Suzuka af 22. og aftasta rásstað.


 

Charles Pic á ferð á Caterhambílnum.
Charles Pic á ferð á Caterhambílnum. mbl.is/afp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert