Franski ökumaðurinn Charles Pic sagðist á blaðamannafundi í Interlagosbrautinni í Sao Paulo í dag efast að einhverju leyti um að hann fengi áframhaldandi starf í formúlu-1.
Pic, sem er 23 ára, segir langt frá því frágengið að hann fái framlengingu á starfssamningi hjá Caterhamliðinu. Hann segir þar mestu ráða tilraunir Heikki Kovalainen til að fá að nýju starf hjá liðinu.
Caterham skipti um báða ökumenn í lok síðustu vertíðar og réðist Pic þá þangað eftir eitt ár í skiprúmi hjá Marussia þar sem hann vakti athygli. Liðin tvö eiga í harðri baráttu um 10. sætið í keppni bílsmiða og hefur það síðarnefnda nú undirtökin vegna þrettánda sætis Jules Bianchi í Malasíukappakstrinum.