Caterham boðar frumsýningu

Charles Pic á Caterhambílnum í kóreska kappakstrinum 2014.
Charles Pic á Caterhambílnum í kóreska kappakstrinum 2014. mbl.is/afp

Botnliðið Caterham er að verða tilbúið með 2014-bíl sinn og hefur ákveðið að frumsýna hann í Jerez á Spáni við upphaf vetraræfinga formúluliðanna.

Caterham sviptir bíl sinn hulum að morgni 28. dags janúar og að athöfn lokinni hefja ökumenn liðsins þróunarakstur. Liðið á enn eftir að tilkynna hverjir verði ökumenn þess.

Þar með er ljóst með frumsýningar þriggja formúluliða af ellefu. McLaren ríður á vaðið 24. janúar og 28. kemur röðin að Mercedes og Caterham. Tvö síðarnefndu liðin frumsýna í Jerez en McLaren á netinu frá bækistöðvum sínum í Englandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert