Fyrsta mót ársins var ef til vill ekki eins fjörlegt og vonast hafði verið til og keppnin um fyrsta sætið engin vegna yfirburða Nico Rosberg í Melbourne.
Hvað sem því líður voru mörg skemmtileg augnablik í mótinu og yngri ökumenn settu mark sitt á kappaksturinn, sérstaklega þó Daninn Kevin Magnussen hjá McLAren og Finninn Valtteri Bottas hjá Williams.
Meðfylgjandi myndasyrpa gefur smá innsýn í mótið í Melbourne.