Tvö ár eru síðan þýski ökuþórinn Michael Schumacher slasaðist á skíðum í Frakklandi þar sem hann datt og lenti með höfuðið á steini. Lítið er vitað um ástand hans í dag en fjölskylda og talsmaður hafa ekki viljað tjá sig um bataferlið.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Schumachers í Formúlu-1 kappakstrinum, Willi Weber, ásakar eiginkonu heimsmeistarans fyrrverandi, Corinnu, um að banna honum að heimsækja vin sinn. Weber fjallaði um málið á facebooksíðu sinni á jóladag þar sem hann lýsti kvölum sínum yfir að Schumacher-fjölskyldan neitaði að halda sambandi við hann.
„Því miður er staðan svona. Corinna bannar mér að heimsækja Schumacher en ég hef oft reynt að fá leyfi til heimsóknar, án árangurs. Ástandið er hræðilegt fyrir mig og fjölskyldan þjáist vegna þess. Fjölskyldur okkur voru svo nánar í aldarfjórðung en núna skilur enginn neitt,“ sagði Weber í samtali við þýska blaðið Bild.
Lögfræðingur Schumachers, Felix Damm, segir að almenningur hafi engan rétt á upplýsingum um líðan ökuþórsins eftir slysið. „Slysið sjálft var þannig að ekki var hægt annað en að fjalla um það. Hins vegar var engin ástæða til að fjalla nánar um það eftir að bataferlið hófst,“ sagði Damm við þýska fjölmiðla.
Því var haldið fram á dögunum að Schumacher hefði náð undraverðum bata í endurhæfingu sinni. Var þar sagt að hann væri farinn að geta lyft höndunum og jafnvel farinn að ganga á ný. Talsmaður Schumachers, Sabine Kehm, neitar þessum fréttum.
„Því miður neyðumst við til að leiðrétta það að Michael er ekki farinn að geta hreyft sig. Slíkar staðhæfingar eru glórulausar, sérstaklega vegna alvöru málsins. Michael vill að einkalíf sitt sé virt og svona sögur gera ekkert nema vekja falsvonir,“ sagði Kehm.
Schumacher verður 47 ára 3. janúar og aðeins nánustu ættingjar og vinir vita hvernig ástand hans er.