Carlos Sainz yngri keppir fyrir Toro Rosso á næsta ári, 2017, að sögn Red Bull stjórans Christian Horner. Býst hann við að Daniil Kvyat verði einnig áfram hjá liðinu.
Í framhaldi af góðri frammistöðu mót eftir mót ákvað Toro Rosso að notfæra sér ákvæði í samningi hans til að framlengja veru hans hjá liðinu út næsta ár.
Sainz hafði meðal annars verið orðaður við Ferrari eftir góða farmmistöðu, þar á meðal sjötta sæti í heimakappakstri hans í Barcelona. Er það besta frammistaða hans í móti til þessa.