Legið hefur í loftinu að Sauber myndi í framtíðinni fá vélar frá Honda og var það svo staðfest í morgun með tilkynningu japanska vélarframleiðandans.
Honda mun áfram halda samstarfi sínu við McLaren en með tilkomu Sauber frá og með næsta ári fæst aukinn slagkraftur í rannsóknar- og þróunarstarf vegna vélanna, sem þá verða í fjórum bílum í stað tveggja.
Undanfarin ár hefur Sauber fengið ár hvert ársgamlar vélar frá Ferrari til afnota.