Aftur til upphafsins mætti segja um Kimi Räikkönen en hann er á leið úr seinni vist sinni í herbúðum Ferrari og yfir til Sauberliðsins, en með því hóf hann keppni í formúlu-1 árið 2001, 22ja ár að aldri.
Räikkönen hefur á ferlinum unnið 20 kappakstra í formúlu-1 og 100 sinnum komist á verðlaunapall.
Segir liðsstjórinn Frederic Vasseur ráðningu finnska ökumannsins mikilvæga í þeirri viðleitni Sauber að komast lengra en áður í keppni liðanna í formúlu-1 í náinni framtíð. Hefur Räikkönen skrifað undir samning til tveggja ára.
„Hæfileikar hans gríðarleg reynsla mun ekki aðeins skila sér í þróun keppnisbílsins heldur mun hún líka leiða til vaxtar og þróunar liðsins. Þar mun hvötin og staðfestan að berjast til verðugra verðlauna drífa mannskapinn áfram. Við munum byrja árið 2019 á góðum grunni,“ segir Vasseur.