Það kostar sitt að klessa bíla í keppninni í formúlu-1. Þanig varð til dæmis Toro Rosso liðið að punga út á þriðju milljón evra, um 312 milljónir íslenskra króna - við endurnýjun tjónaðra bíla.
Ökumenn Toro Rosso, dótturliðs Red Bull, komu hvað eftir annað við sögu óhappa. Hörðustu skellina hlutu Brendon Hartley í Montreal og Silverstone, og Pierre Gasly í Barcelona. Bestu úrslitin fyrir liðið var fjórða sæti Gasly í Barein.
Hartley hlaut einnig harðan skell á lokaæfingunni fyrir tímatökuna í Barcelona í Monza dró bíllinn ekki inn að fyrstu beygju vegna bíltjóns í ræsingunni.
Liðsstjórinn Frank Tost segir í uppgjöri fyrir nýliðið ár, að Toro Rosso hafi átt bæði góða daga og slæma 2018. Úrslitin hafi verið blendin vegna mikilla og kostnaðarsama tjóna. „Við vorum mjög góðir í nokkrum mótum. Hæst ber fjórða sæti Gasly í Barein og hann stóð sig einnig vel með sjötta sæti í Mónakó og Búdapest.
En við lentum oft í árekstrum og þeir einir og sér kostuðu okkur 2,3 milljónir evra í viðgerðir og varahluti,“ segir Tost. Nefnir hann harðan árekstur Gasly og Romain Grosjean í Barcelona og árekstur Gasly og Esteban Ocon á heimavelli beggja í Paul Ricard brautinni í Frakklandi.
Síðan fylgdu harðir skellir Lance Stroll og Hartley í Montreal og mikið tjón á bíl Hartley í Silverstone er hann skall harkalega á vegg eftir að fjöðrun brotnaði.