Max Verstappen hjá Red Bull er á því að liðið sé í sterkari stöðu en í fyrra með nýrri vél frá Honda. Undanfarin ár hefur liðið brúkað vélar frá Renault en það samstarf fjaraði út í fyrra.
Verstappen kláraði kappaksturinn um helgina í þriðja sæti og er það fyrsta pallsæti Honda frá því japanski bílsmiðurinn mætti aftur til leiks í formúlu-1 árið 2015.
„Hraðinn í kappakstrinum var betri en í fyrra,“ sagði Verstappen. „Og ég er mjög ánægður með topphraðann í samanburði við hraða hinna tveggja toppliðanna. Almennt séð starfaði vélin mjög vel og vandræðalaust, sem er mjög mikilvægt. Tíminn mun leiða í ljós hvort við getum keppt um sigur í mótum.“
Pallsæti Verstappen í Melbourne var sjötta heimsókn hans á verðlaunapall í röð, eða allt frá í japanska kappakstrinum í fyrra.