George Russel segir að Willamsliðið mæti til leiks í Barcelona með „spennandi“ nýja íhluti í keppnisbíl sinn, sem verið hefur sá slakasti hingað til í ár.
Williams hefur átt erfiðu gengi að fagna í fyrstu fjórum mótum ársins og hefur ekkert lið til að keppa við á botninum.
Russell segir að prófaður verði fjöldi nýrra íhluta sem liðsmenn vænti að marki viðsnúning í getu bílsins.
„Ég er spenntur fyrir Barcelona, þar vann ég kappaksturinn í formúlu-2 í fyrra. Vonandi beina nýju íhlutirnir okkur inn á farsælli brautir það sem eftir er,“ segir Russell í aðdraganda fyrsta móts ársins í Evrópu.
Samkvæmt hefð er kappaksturinn í Barcelona það mót sem liðin taka í notkun fyrstu stóru uppfærsluna í bíla sína.
Dagana eftir keppni fá keppnislið formúlunnar tækifæri til tveggja daga þróunaraksturs í Barcelona.