Rio de Janeiro verður vettvangur Brasilíukappakstursins frá og með næsta ári, 2020, að sögn forseta Brasilíu.
Nokkurrar óvissu hefur gætt vegna kappakstursins og framtíð hans í Sao Paolo sem hefur átt í erfiðleikum með öflun fjár til að kosta keppnishaldið.Síðast var keppt í formúlu-1 í Rio de Janeiro árið 1989, í Jacarepagua brautinni. Hún var jöfnuð við jörðu er Brasilíumenn undirbjuggu Ólympíuleikana þar í landi 2016.