Frönsk yfirvöld hafa gripið til gríðarlegrar öryggisgæslu vegna franska kappakstursins í formúlu-1 sem fram fer um komandi helgi í Paul Ricard brautinni í Le Castellet upp af suðurströnd Frakklands.
Til að tryggja öryggi á kappaksturshelginni hafa á fimmta hundrað herlögreglumenn tekið sér stöðu við brautina og í nágrenni hennar frá og með morgundeginum.
Þá hefur 13 skólum í nágrenninu verið lokað fram til mánudags, reiðhjól verið bönnuð á öryggissvæðinu svo eitthvað sé nefnt.
Búist er við 160.000 manns til Paul Ricard brautarinnar til að fylgjast með kappakstrinum.
Af herlögreglumönnunum verða 110 á mótorhjólum og munu m.a. sinna umferðarstjórn til að bílaflæðið til og frá brautinni verði sem greiðast. Til að auðvelda það hefur akstri vörubíla á stóru svæði verið bannaður mótsdagana þrjá.
Þá verður sérsveit 30 óeirðalögreglumanna við brautina. Ennfremur lögreglusveitir sem sérþjálfaðar eru í gagnárásum á drónaflug og leit að fíkniefnum og vopnum. Til að kóróna öryggisvörsluna í tengslum við kappaksturinn urðu allir sjálfboðaliðar sem vinna hin ýmsu störf á mótssvæðinu að undirgangast yfirheyrslur sýslumannsembættisins í sýslunni VAR sem Le Castellet er á.
Gríðarlegir þurrkar hafa verið í Suður-Frakklandi og sérstaklega í VAR-sýslu. Af þeim sökum verða 70 slökkviliðsmenn staðsettir við brautina til að bæla niður gróðurelda ef í kviknaði.