Williamsliðið tilkynnti í dag, að pólski ökumaðurinn Robert Kubica hefði ákveðið að standa upp úr kappakstursbíl liðsins við komandi vertíðarlok í nóvember.
Eftir nokkur aksturspróf hjá Williams 2017 þar sem hann sigraði hug og hjörtu liðsmanna réði Williams Kubica sem reynslu- og þróunarökumann sinn fyrir árið 2018 og sem keppnismann á þessu ári, 2019.
Vann Kubica fyrstu stig Williamsliðsins á yfirstandandi keppnistíð í þýska kappakstrinum í Hockenheim.
„Ég vil þakka liðinu fyrir tvö síðustu árin og hjálpa mér að komast aftur til keppni í formúlul-1. Ég hef notið verunnar hjá Willams, bæði sem þróunarökumaður og sem keppandi. Mér finnst tímabært nú að leita inn á einhver önnur svið og nýs kapítula í keppnisferilsinn.
Liðsstjórinn Claire Williams segist virða þá ákvörðun Roberts Kubica að yfirgefa liðið í vertíðarlok, lagði áherslu á mikið og mikilvægt framlag hans til liðsins og óskaði honum velgengni á nýjum lendum. Kveðst liðið síðar munu skýra frá hverjir keppi fyrir Williams 2020 en líklegt þykir að nýliðinn George Russell haldi sæti sínu.