Leclerc vill þriðja sætið

Svalt var í Austin í Texas í dag er Charles …
Svalt var í Austin í Texas í dag er Charles Leclerc skoðaði brautina með liðsmönnum sínum. AFP

Char­les Leclerc hjá Ferr­ari kveðst stefna að því að ná þriðja sæt­inu í keppni öku­manna í formúlu-1 um heims­meist­ara­titil­inn. 

„Tit­ill­inn er ekki í boði en þriðja sætið yrði geggjað þegar haft er í huga að ég varð í þrett­ánda sæti í keppni öku­manna í fyrra. Það hvarflaði aldrei að mér þá að ég yrði í keppni um þriðja sætið ári seinna. Nú er það hins veg­ar metnaður minn að ná þriðja sæt­inu og myndi gleðjast mjög landi ég því.“

Í sam­an­b­urði við helstu keppi­nauta sína hjá Mercedes og liðsfé­laga sinn Sebastian Vettel seg­ist Leclerc telja bæði ökustíl sinn og dekkja­notk­un geta batnað tals­vert.

Svalt var í Austin í Texas í dag er Charles …
Svalt var í Aust­in í Texas í dag er Char­les Leclerc skoðaði braut­ina með aðstoðarmönn­um sín­um hjá Ferr­ari. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert