Fyrsti keppnisbíll Michaels Schumacher hjá Ferrari hefur verið settur í sölu.
Um er að ræða bíl með tegundarheitinu 412 T2 og undirvagnsnúmerinu 157. Á honum vann hann einn sigur árið 1996 og komst 11 sinnum á verðlaunapall.
Það er bílasalan Girardo & Co. sem falið hefur verið að selja bílinn en ekkert hefur enn verið látið uppi um kaupverðið.