Finnski ökumaðurinn Valtteri Bottas hjá Mercedes var í þessu að vinna ráspól Emilia Romagna kappakstursins sem fram fer í Imolabrautinni á Ítalíu á morgun.
Hrifsaði Bottas pólinn á síðustu sekúndunum af liðsfélaga sínum Lewis Hamilton. Munsði rétt innanvið sekúndu á tímahring þeirra.
Út í gegn snerist tímatakan um þá Bottas og Hamilton. Engir aðrir ökumenn komu þeim nálægt. Í lokalotunni var spennan við það hvort tæknimönnum Red Bull tækist að lagfæra bilun í bíl Max Verstappen sem hefja hefði þurft keppni úr tíunda sæti hefði það mistekist.
Lét tæknisveitin hendur standa fram úr ermum og með þeim árangri að Verstappen komst einn tímahring í blálokin og ók til þriðja sætis.
Þar fyrir aftan í fjórða til sjötta sæti urðu Pierre Gasly á Alpha Tauri, Daniel Ricciardo á Renault og Alexander Albon á Red Bull.
Fyrri tug rásmarksins fylltu svo Charles Leclerc á Ferrari, Daniil Kvyat á Alpha Tauri, Lando Norris og Carlos Sainz á McLaren.