Finnska ökumanninum Valttery Bottas tókst að halda liðsfélaga sínum Lewis Hamilton í skefjum á seinni æfingu dagsins í Imola á Ítalíu en þar fer annað mót ársins í formúlu-1 fram á sunnudag.
Aðeins munaði þó 10 þúsundustu úr sekúndu á þeim ökumönnum Mercedes. Þriðja besta tímann setti Pierre Gasly á AlphaTauri og var aðeins 78 þúsundustu úr sekúndu á eftir Bottas.
Æfingin varð endasleppt hjá Max Verstappen á Red Bull sem af málsmetandi mönnum og spekingum var talinn sigurstranglegastur þegar æfingar dagsins runnu upp. Hætti hann akstri vegna bilunar í bílnum skömmu eftir að æfingin hófst.
Charles Leclerc á Ferrari missti stjórn á bíl sínum er afturdekkin misstu veggrip í beygju með þeim afleiðingum að hann skall á öryggisvegg. Aðeins voru þá eftir fjórar mínútur og var æfingunni aflýst þegar í stað.
Leclerc hafnaði í fimmta sæti, einu á eftir liðsfélaga sínum Carlos Sainz. Í sætum sex til tíu urðu svo Sergio Perez á Red Bull, Yuki Tsunoda á AlphaTauri, Lando Norris á McLaren, Antonio Giovinazzi á Alfa Romeo og Lance Stroll á Aston Martin.