Verstappen hraðastur allra

Max Verstappen var fljótastur allra á æfingum í Miami.
Max Verstappen var fljótastur allra á æfingum í Miami. AFP/Chandan Khanna

Max Verstappen, heimsmeistari í Formúlu 1, var hraðastur allra á æfingum fyrir Miami kappaksturinn sem fram fer um helgina.

Hollendingurinn fljúgandi var 0.385 sekúndum fljótari en Carlos Sainz sem kom næstur í mark. Ferrari-liðar röðuðu sér í sæti tvö og þrjú en Charles Leclerc var 0.083 sekúndum á eftir Sainz.

Sergio Perez, liðsfélagi Verstappen hjá Red Bull, varð síðan fjórði, 0.489 sekúndum á eftir Verstappen.

Fernando Alonso varð fimmti á Aston Martin bíl sínum, Lando Norris varð sjötti á McLaren og Lewis Hamilton kom sjöundi í mark á Mercedes.

Hamilton, sem er sjöfaldur heimsmeistari, segir að hraði Mercedes-bílsins í æfingum hafi verið skelfilegur og liðið þurfi nauðsynlega á uppfærslum að halda.

Toto Wolff, liðstjóri Mercedes, segir að það sé ýmislegt gott við bílinn en að það sé erfitt að ná öllu úr honum. Þegar ökumennirnir keyri fullir sjálfstraust þá sé bíllinn góður en annars ekki.

Miami kappaksturinn fer fram á sunnudag en tímatakan fer af stað klukkan 20 í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert