Norris byrjar á ráspól

Max Verstappen, Lando Norris og Lewis Hamilton eftir keppnina í …
Max Verstappen, Lando Norris og Lewis Hamilton eftir keppnina í dag. AFP+/Thomas Coex

Lando Norris, sem keyrir fyrir McLaren í Formúlu 1 mun byrja á ráspól á Spáni á morgun klukkan 13.00.

Þetta er í annað sinn á ferlinum sem hann byrjar á ráspól en hann náði frábærum tíma á lokahringnum sem hann fór á 1:11.383. Það eru þrjú ár síðan hann var síðast á ráspól í Rússlandi árið 2021.

 Max Verstappen sem keyrir fyrir Red Bull byrjar annar og þeir Lewis Hamilton og George Russell sem keyra fyrir Mercedes byrja fyrir aftan þá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert