Sainz til Williams

Carlos Sainz er á förum til Williams
Carlos Sainz er á förum til Williams AFP/John Thys

Spænski ökuþórinn Carlos Sainz hefur samið við Williams liðið um að aka fyrir þá næstu tvö árin. Sainz yfirgefur Ferrari í haust þegar Lewis Hamilton tekur sæti hans.

Williams liðið hefur verið eitt slakasta lið Formúlunnar undanfarinn áratug og er liðið einungis með fjögur stig á botni töflunnar á þessu tímabili. Sainz er öflugur ökumaður og áhugavert verður að sjá hvort hann nái að rífa hið sögufræga Williams lið upp af botninum.

Lewis Hamilton mun aka við hlið Charles Leclerc hjá Ferrari næstu árin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert