Haraldur Björnsson, markvörður frá Hearts í Skotlandi, var valinn besti markvörðurinn á alþjóðlegu móti 18 ára landsliða í knattspyrnu sem lauk í Tékklandi í gær. Haraldur varði mark Íslands í öllum þremur leikjunum en íslenska liðið gerði jafntefli við Belga, 1:1, og tapaði 1:3 fyrir Slóvökum og 1:2 fyrir Pólverjum.