Óðinn Árnason knattspyrnumaður frá Akureyri gekk í kvöld til liðs við sitt gamla félag, Þór, eftir sex ára fjarveru og skrifaði undir eins árs samning. Þetta kemur fram á vef Þórsara.
Óðinn er þrítugur varnarmaður og lék um árabil með Þórsurum. Hann var í liði þeirra sem fór beint úr 2. deild í úrvalsdeildina á árunum 2000 og 2001, spilaði með þeim í úrvalsdeildinni 2002 en gekk síðan til liðs við Grindavík. Þar lék hann í fjögur ár og tvö undanfarin ár hefur Óðinn spilað með Fram. Hann missti af stórum parti tímabilsins vegna meiðsla og náði aðeins að spila 7 leiki í úrvalsdeildinni um sumarið.
Óðinn hefur alls spilað 177 deildaleiki á ferlinum og þar af eru 108 leikir í úrvalsdeildinni.