Sölvi skoraði í jafnteflisleik

Sölvi Geir Ottesen sá um markaskorunina hjá SönderjyskE í dag.
Sölvi Geir Ottesen sá um markaskorunina hjá SönderjyskE í dag. mbl.is/Ómar

Sölvi Geir Ottesen var á skotskónum þegar lið hans SönderjyskE fór aftur af stað í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir vetrarhlé en liðið gerði 1:1 jafntefli við Bröndby á útivelli í dag.

Sölvi kom gestunum yfir á 31. mínútu en Alexander Farnerud jafnaði metin fyrir Bröndby úr vítaspyrnu á 86. mínútu.

Ólafur Ingi Skúlason lék allan leikinn á miðjunni hjá SönderjyskE en Sölvi Geir í vörninni. Stefán Gíslason var ekki í leikmannahópi Bröndby.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert