Emil Hallfreðsson skoraði glæsilegt mark með langskoti í gær þegar Verona sigraði Ascoli, 2:0, í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu.
Emil, sem á föstudag var valinn í íslenska landsliðið á ný eftir tveggja ára hlé, hefur átt góðu gengi að fagna með nýliðum Verona í vetur en liðið er í 3. sæti og í hörðum slag um sæti í A-deildinni. Hann hefur undanfarin ár leikið sem miðjumaður með liðinu með góðum árangri, ekki sem kantmaður eins og hann gerði á árum áður.
Markið má sjá hér fyrir neðan: