Þýski landsliðsmaðurinn Sami Khedira sem leikur með Evrópumeisturum Real Madrid verður frá æfingum og keppni næstu vikurnar.
Khedira tognaði í læri á æfingu með þýska landsliðinu sem mætir Argentínumönnum í vináttueik annað kvöld og er reiknað með að hann verði frá keppni í allt að sex vikur.
Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir Carlo Ancelotti þjálfara Real Madrid enda hefur hann misst tvo miðjumenn úr liði sínu á síðustu dögum. Angél Di Maria fór til Manchester United og Xabi Alonso til Bayern München.