Björn og Eggert mætast á Parken

Björn Bergmann Sigurðarson með treyju FC Köbenhavn
Björn Bergmann Sigurðarson með treyju FC Köbenhavn Ljósmynd/fck.dk

Björn Bergmann Sigurðarson og Eggert Gunnþór Jónsson spila báðir sinn fyrsta leik í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar lið þeirra, FC Köbenhavn og Vestsjælland, eigast við á Parken í Kaupmannahöfn.

Björn Bergmann leikur í fremstu víglínu FC Köbenhavn en Rúrik Gíslason byrjar á bekknum. Eggert Gunnþór er í liði Vestsjælland en markvörðurinn Frederik Schram er á bekknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka