Rúnar Alex fékk tækifæri

Rúnar Alex Rúnarsson.
Rúnar Alex Rúnarsson. mbl.is/Árni Sæberg

Rúnar Alex Rúnarsson markvörður U21 árs landsliðsins í knattspyrnu fékk tækifæri á milli stanganna með Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Rúnar Alex þurfti að sækja boltann úr neti sínu í þrígang en 3:3 jafntefli varð niðurstaðan eftir að Nordjælland hafði komist í 3:0 þegar 20 mínútur voru til leiksloka. Theódór Elmar Bjarnason lék ekki með AGF í dag vegna meiðsla.

Morten Duncan Rasmussen reyndist Rúnari Alex erfiður sem og varnarmönnum liðsins en hann skoraði öll þrjú mörk liðsins. Þetta var annar leikur Rúnars í deildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert