Brasilíska liðið Chapecoense, sem átti að leika til úrslita í Copa Sudamericana, næststærstu keppni félagsliða í Suður-Ameríku, verður krýnt meistari í keppninni.
Eins og komið hefur fram áður var liðið í flugvélinni sem fórst í skammt frá borginni Medellín í Kólumbíu aðfaranótt þriðjudags. Chapecoense var á leið í fyrri úrslitaleikinn í Copa Sudamericana.
Suður-Ameríska knattspyrnusambandið hefur nú tilkynnt að Chapecoense verði krýndir meistarar.
22 leikmenn Chapecoense voru í flugvélinni en þrír þeirra, varamarkvörðurinn Jakson Ragnar Fullmann, 24 ára, varnarmaðurinn Helio Neto sem er 31 árs, og miðjumaðurinn Alan Ruschel, 27 ára, en allir hinir létu lífið.
Chapecoense átti að mæta Atlético Nacional frá Kólumbíu í úrslitaleikjum Copa Sudamericana.