Íslenskir dómarar í Evrópuleikjum

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson. Ljósmynd/Eva Björk Ægisdóttir

Knattspyrnudómararnir Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og Gunnar Jarl Jónsson fengu verkefni í Evrópudeildinni í vikunni.

Gunnar Jarl mun dæma leik Cork frá Írlandi og Levadia Tallinn frá Eistlandi, sem fram fer á morgun á Írlandi. Aðstoðardómarar Gunnars í leiknum verða þeir Birkir Sigurðarson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Fjórði dómari verður Þorvaldur Árnason. 

Vilhjálmur dæmdi svo leik Progrés Niederkorn og Rangers. Leikurinn fór fram í Lúxemborg í gær og lauk með mjög óvæntum sigri heimamanna, 2:0. Aðstoðardómarar Vilhjálms voru Gylfi Már Sigurðsson og Oddur Helgi Guðmundsson. Fjórði dómari var Ívar Orri Kristjánsson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert